Fyrirvari um ábyrgð
Þetta verkfæri er einnig með tengla á önnur vefsetur sem ekki eru undir stjórn evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar eða þeirra samtaka sem málið varðar. Stofnunin og samtökin sem málið varðar taka ekki á sig neina ábyrgð með tilliti til innihalds þessara vefsetra.
Evrópska vinnuverndarstofnunin og samtökin sem málið varðar eru ekki skaðabótaskyld vegna rangra, ónákvæmra, óviðeigandi eða ófullnægjandi upplýsinga sem vistaðar eru í OiRA verkfærinu né öðrum skaða sem af hugbúnaðinum kann að stafa.
OiRA verkfærinu er ekki ætlað að ná yfir allar hættur sem eru á hverjum vinnustað, aðeins að vera til aðstoðar við framkvæmd áhættumatsins. Til að OiRA verkfærið nái tilgangi sínum að fullu þarf að aðlaga það að sérstökum aðstæðum í fyrirtæki þínu - bæta þarf við sumum atriðum og sleppa öðrum ef þau skipta ekki máli.
Til hægðarauka og til að auðvelda greiningu setur verkfærið vandamál/hættur fram hverja fyrir sig en á vinnustað geta þær verið samtvinnaðar. Þess vegna þarf að taka tillit til gagnkvæmra áhrifa hinna mismunandi vandamála og áhættuþátta sem greinast.
Þess vegna viðurkennir Evrópska vinnuverndarstofnunin (OSHA) ekki neina bótaskyldu gagnvart skaða og kröfum ef verkfærið nær ekki til allra áhættuþátta í tiltekinni atvinnugrein.
Auk þess viðurkennir stofnunin og viðkomandi samtök sem taka þátt í gerð OiRA verkfærisins ekki neina bótaábyrgð vegna skaða sem rís af notkun verkfærisins eða ófærni við notkun þess og gögn sem þar eru geymd. Á sama hátt viðurkennir Evrópska vinnuverndarstofnunin ekki neina bótaábyrgð ef um er að ræða að ráðstafanir OiRA verkfærisins til að prenta út skýrsluna eða skrá sjálfkrafa áhættumatið sem verkfærið myndar. Þar af leiðandi þarf vinnuveitandi að ganga úr skugga um að hafa tiltækt hvenær sem er útprentað, nákvæmt og uppfært áhættumat.